Um uppfærslur á hugbúnaði tækisins
Með uppfærslu á hugbúnaði tækisins geturðu fengið nýjar valkosti og endurbættar
aðgerðir í tækið. Uppfærsla á hugbúnaðinum kann einnig að bæta afköst tækisins.
Mælt er með því að tekið sé öryggisafrit af persónulegum gögnum áður en hugbúnaður
tækisins er uppfærður.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en uppfærslunni
er lokið og tækið hefur verið endurræst.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í sér stórar gagnasendingar
(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður en
uppfærslan er ræst.
Þegar hugbúnaður tækisins hefur verið uppfærður er ekki víst að leiðbeiningarnar í
notendahandbókinni eigi lengur við.
Leitaðu frekari hjálpar 31