
Margmiðlunarskilaboð
Margmiðlunarskilaboð geta innihaldið texta, myndir og hljóðskrár.
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt margmiðlunarskilaboð.
Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt er inn
fer yfir þessi mörk gæti tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda hana með
MMS.
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Skilaboð geta innihaldið
skaðlegan hugbúnað eða skaðað tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um þjónustu og áskrift að margmiðlunarþjónustunni
(MMS).